| Starfshættir |
|
Þjónusta Stígamóta er fyrir fólk frá 18 ára aldri, bæði konur og karla. Flestir sem koma til Stígamóta eru brotaþolar kynferðisofbeldis, bæði í æsku og/eða á fullorðinsárum. Stígamót eru líka fyrir fjölskyldumeðlimi og aðra aðstandendur brotaþola. RáðgjöfTil að byrja með er fólki boðin einstaklingsviðtöl sem felst í stuðningi við að setja ofbeldið í orð, og skoða þær afleiðingar sem það hefur skilið eftir sig. Erfitt er fyrir flesta að koma í fyrsta viðtalið og er það mjög eðlilegt þar sem um erfiðar endurminningar er að ræða og sumir jafnvel að tala um ofbeldið í fyrsta skipti. Við gerum allt sem í okkar valdi stendur að gera viðtölin eins þægileg og hægt er. Viðtölin eru oft fyrstu skrefin til að ná tökum á afleiðingum ofbeldisins, sjálfsmynd og sjálfsvirðingu. Einstaklingurinn ræður sjálfur ferðinni, hve mikinn stuðning hún/hann vill og hve lengi.
Margir velja að taka þátt í sjálfshjálparhóp eftir nokkur einstaklingsviðtöl, aðrir velja eingöngu einstaklingsbundna ráðgjöf. Viðtöl hjá Stígamótum eru ókeypis.
HópastarfFrá upphafi starfssemi Stígamóta hafa sjálfshjálparhópar verið kjarninn í starfsseminni. Hóparnir eru í boði fyrir þá sem hafa nýtt sér einstaklingsviðtöl Stígamóta og eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Hóparnir eru kynjaskiptir og eru hópar fyrir bæði konur og karla sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi.
Markmið hópanna er:
Í þessum hópum koma einstaklingarnir saman til að sækja styrk til að takast á við þær afleiðingar sem rekja má til ofbeldisins. Reynslan af sjálfshjálparhópunum hefur verið mjög góð.
Uppbyggingin á hópunum er alltaf sú sama, þ.e. 5-7 einstaklingar og einn eða tveir leiðbeinendur. Hóparnir hittast í 15 skipti, í 3 klst í senn. Allir sem taka þátt í sjálfshjálparhóp, gera það á sínum eigin forsendum og ráða sjálfir hversu mikla sjálfsvinnu þeir fara í.
Kristínarhús - AthvarfHaustið 2011 opnuðu Stígamót athvarf sem heitir Kristínarhús. Það er fyrst og fremst hugsað fyrir konur sem hafa verið seldar mansali eða stundað vændi og vilja komast út úr því. Þá mun athvarfið nýtast öðrum sem sækja þjónustu til Stígamóta ef á þarf að halda t.d. konum utan af landi eða öðrum sem eru í aðstæðum þar sem kynferðisofbeldi viðgengst. Karlar í vændi eru líka velkomnir. Í athvarfinu eru sex svefnherbergi og fá allir gestir fá sitt eigið herbergi. Til að tryggja öryggi er heimilisfang Kristínarhúss leynilegt. Boðið er upp á dvöl til lengri eða skemmri tíma. Allir gestir fá viðtöl hjá ráðgjöfum Stígamóta til að vinna í átt að sjálfshjálp auk þess sem boðið verður upp á aðgang að öðrum sérfræðingum eftir þörfum s.s. lækni, hjúkrunarfræðingi, lögfræðingi, félagsráðgjafa og svo framvegis. Þá munum við aðstoða við að nýta önnur úrræði sem í boði eru s.s. fullorðinsfræðslu, vímefnumeðferðir, íslenskukennslu, náms- og starfsráðgjöf.
Stígamót utan höfuðborgarsvæðisinsÁrið 2006 var samþykkt tilraunaverkefni á Austfjörðum í þrjá mánuði. Um var að ræða samstarfsverkefni Stígamóta, Fljótsdalshéraðs og Fjarðabyggðar. Þessu verkefni var haldið áfram árin 2007 og 2008. Þá bættust fleiri staðir við sem tilraunaverkefni árið 2008, Vestmannaeyjar, Árborg, Borgarbyggð og Snæfellsbær.
Í upphafi verkefnisins á hverjum stað voru haldnir fundir með fagfólki staðarins og opnir fundir fyrir alla þá sem vildu kynna sér þjónustu Stígamóta á staðnum. Þá var líka boðið uppá fræðslu í framhaldsskólum á hverjum stað. Verkefnið sjálft hefur svo falist í því að ráðgjafi frá Stígamótum hefur farið á þessa staði með reglulegu millibili, oftast einn dag hálfsmánaðarlega, og boðið uppá viðtöl í heimabyggð. Bæði á Austurlandi og í Vestmannaeyjum hefur líka verið boðið uppá sjálfshjálparhópa fyrir konur. Flestar starfskonur Stígamóta hafa tekið að sér að fara á einn eða fleiri af þessum stöðum. Þá hafa Stígamót áður verið í samstarfi við Krýsuvík.
Það hefur sýnt sig í þessum verkefnum Stígamóta um landið að þörfin er til staðar á landsbyggðinni, rétt eins og á höfuðborgarsvæðinu og þjónustan hefur verið mjög vel nýtt á öllum þessum stöðum.
Til að fá upplýsingar um þjónustu Stígamóta utan höfuðborgarsvæðisins, vinsamlegast hafið samband í síma 562-6868 eða við
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
FræðslaFrá upphafi hefur meginmarkmið Stígamóta verið tvíþætt. Annars vegar að veita stuðning og ráðgjöf þeim sem orðið hafa verið beitt kynferðisofbeldi og hins vegar að vinna kvennapólitíska samfélagsvinnu. Hluti af þeirri vinnu er að taka á móti nemendahópum í fræðslu, halda fyrirlestra og taka virkan þátt í að miðla upplýsingum. Stígamót hafa í gegnum tíðina lagt áherslu á fjölbreytta kynningarstarfsemi svo sem ráðstefnur, auglýsingagerð, veggspjöld, málstofur, fjöldagöngur og ýmislegt fleira. Til að fá meiri upplýsngar um fræðslu á Stígamótum vinsamlegast hafið samband í síma 562-6868 eða við Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|