| Algengar spurningar um Stígamót |
Fyrir hverja eru Stígamót?Hingað leitar fólk sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi á lífsleiðinni. Flestir sem hingað leita eru fullorðnir sem koma vegna ofbeldis sem þau voru beitt í æsku, en einnig koma einstaklingar sem nýlega voru beittir ofbeldi. Við vinnum ekki með ofbeldismönnum kynferðisofbeldis. Koma börn á Stígamót?Nei, börn eru í umsjá Barnaverndaryfirvalda og sé grunur um misnotkun skal tilkynna það til 112. Hægt er að óska eftir nafnleynd. Í framhaldi af því (eftir að rannsókn hefur farið fram) býðst þeim börnum sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi viðeigandi þjónusta í Barnahúsi. Er boðið upp á stað til að búa á?Já, Kristínarhús er athvarf Stígamóta þar sem boðið er upp á dvöl til lengri eða skemmri tíma fyrir fólk sem nýtir sér þjónustu Stígamóta.
Koma karlmenn á Stígamót?Já. Karlmenn eru uþb 10-15% af þeim sem leita til Stígamóta vegna kynferðisofbeldis og við bjóðum einnig upp á hópa fyrir karlmenn. Hvert geta ofbeldismenn leitað?Anna Kristín Newton og Þórarinn V. Hjaltason sálfræðingar hafa sinnt ofbeldismönnum. Síminn hjá Önnu er 694-9077 og hjá Þóranni 770-6323 Hvað kosta viðtöl og hópar?Þjónusta Stígamóta er ókeypis.
Hvað með fólk utan höfuðborgarsvæðisins?Árið 2007 hófst tilraun með verkefni sem var gefið nafnið Stígamót á staðinn. Þá fara starfskonur Stígamóta til annara sveitafélaga og bjóða þjónustu sína í einn dag og halda svo heim til Reykjavíkur með leyndarmálin. Undanfarið hefur verið boðið upp á þessa þjónustu á Sauðárkróki og á næstu mánuðum verður boðið upp á viðtöl á fleiri stöðum víðsvegar um landið. Einnig er í boði að koma til Reykjavíkur í viðtöl á Stígamótum og dvelja í Kristínarhúsi á meðan. Þá eru tekin nokkur viðtöl á stuttum tíma, t.d. á einni viku. Þá er hægt að fá viðtöl í gegnum síma og nýta margir sér það utan höfuðborgarsvæðisins. Get ég komið þótt ég hafi verið beitt/ur ofbeldi fyrir mörgum árum?Já, flestir sem leita til Stígamóta eru að vinna úr gömlum málum, jafnvel frá því í æsku. Get ég treyst því að það ríki fullkominn trúnaður?Það er grundvallaratriði að fólkið sem kemur til Stígamóta geti komið hingað og treyst því að sagan þeirra sé í öruggum höndum. Því leggjum við okkur fram um að hér ríki fullkominn trúnaður. Til dæmis erum við ekki með númerabirti á Stígamótum svo fólk geti hringt án þess að hægt sé að bera kennsl á það. Það er þó ein undantekning á þessu og hún er af lagalegum ástæðum. Ef einstaklingur segir frá kynferðislegri misnotkun gegn barni sem er undir 18 ára aldri þá erum við lagalega skuldbundnar til að tilkynna það til barnaverndaryfirvalda. Þetta á einungis við um einstaklinga sem eru undir 18 ára aldri í dag en ekki gömul mál fullorðinna einstaklinga sem ekki hafa kært. Hvað er kynferðisofbeldi og hversu alvarlegt þarf ofbeldið að vera til ég geti fengið þjónustu á Stígamótum?Margir efast um að það ofbeldi sem þeir voru beittir sé nægilega alvarlegt til að réttlæta að leita til Stígamóta. Kynferðisofbeldi er ekki eingöngu líkamleg valdbeiting heldur einnig óumbeðin og óviðeigandi kynferðisleg hegðun með eða án snertingar. Til dæmis að vera látin horfa á klám eða kynlífsathafnir annarra, o.s.frv. Ef þú telur þig hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og finnst þú bera afleiðingar þess þá er best að hringja í okkur og panta tíma. Hvað gerist í viðtölum og hvernig fara þau fram?Algengast er að viðtölin standi í 45-60 mínútur og séu til að byrja með vikulega eða á tveggja vikna fresti. Þó er það samkomulags atriði. Viðtölin eru einstaklingsbundin og ekki formföst. Fólk þarf að skrifa undir þagnareið og svo biðjum við um að það fylli út spurningalista. Þessar upplýsingar eru fyrir gagnasöfnun en geta líka verið góður stökkpallur til að vinna frá. Þarf ég að kæra ef ég kem á Stígamót?Nei, ef þú hefur náð 18 ára aldri og ert að koma vegna ofbeldis sem þú hefur verið beitt(ur) þarftu ekki að kæra þó þú komir á Stígamót og þú verður ekki beitt(ur) þrýstingi frá starfskonum Stígamóta til að kæra. |