Stígamót - Grasrótarhreyfing gegn kynferðisofbeldi

 Ég vil gerast styktaraðili Stigamóta

Árskýrsla 2012


Sjá fleirri skýrslur

Pólska
Tailenska
Spænska
Enska
Rússneska
 

Fréttir
Námskeið fyrir sjálfboðaliða í vændisathvarfi Stígamóta
 Stígamót óska eftir sjálfboðaliðum til starfa í nýju vændis- og mansalsathvarfi sem mun opna í byrjun september. Um er að ræða viðveru og þátttöku í daglegu lífi athvarfsins. Í boði er að sinna vöktum hvort sem um ræðir dag, kvöld, nætur eða helgar.
Starfið hefst með námskeiði þar sem tilvonandi sjálfboðaliðar kynnast betur starfsemi athvarfsins og læra um veruleika vændis. Til þess að taka þátt í sjálfboðaliðastarfinu þurfa konur að hafa tekið þátt í a.m.k. 4 af 5 fyrirlestrum á námskeiðinu. Námskeiðið verður haldið á Stígamótum, Hverfisgötu 115, s. 5626858.
 
Miðvikudagur 24. ágúst, kl. 17:30-19:30
Vændi í víðu samhengi – Guðrún Jónsdóttir
Tengsl vændis og kynferðisofbeldis annars vegar og tengslin á milli kláms, vændis og mansals hins vegar. Hvernig óhjákvæmilegt var að Stígamót bættu þessum birtingarformum ofbeldis á verkefnalistann.  Hvernig virkar ferli mansalsmála á Íslandi? Lög um klám og vændi. 
 
Fimmtudagur 1. september, kl. 20-22
Reynslan frá Danmörku af svipaðri þjónustu – Dorit Otzen ( fer fram á ensku)
Dorit Ozen segir frá áratuga starfi sínu með konum í vændi og ýmsum úrræðum sem hún hefur staðið fyrir þar í landi. Má nefna Hreiðrið athvarf fyrir konur í götuvændi, afeitrunarstöð, meðferðarstöð, athvarf fyrir konurá leið úr vændi, úrræðið „Stöðvum mansal“ sem Dorit leiddi á vegum stjórnvalda, EXIT nýtt athvarf fyrir konur á leið úr vændi og fleira. Dorit er handleiðari starfshóps Stígamóta í vændismálum og hafa fjórar úr hópnum verið hjá henni í starfsþjálfun.
 
Þriðjudagur 6. september, kl. 20-22
Vændi: Hverjar eru birtingamyndir þess og hvaða afleiðingar getur það haft í för með sér?
– Anna Þóra Kristinsdóttir og Björg G. Gísladóttir
Anna Þóra og Björg hafa reynslu af því að starfa með sjálfshjálparhópi kvenna sem hafa verið í vændi og farið í starfsþjálfun til Danmerkur. Þær munu deila reynslu sinni og fara yfir hinar margvíslegu félagslegu, sálrænu og líkamlegu afleiðingar vændis.
 
Mánudagur 12. september, kl. 17:30-19:30
Kaupendur vændis og vændismarkaðurinn á Íslandi - Karen Linda Eiríksdóttir
Karen Linda segir frá athugunum Stígamóta á líflegum vændismarkaði á Íslandi og fleiru.
Sjálfboðaliðar: Praktísk mál og starfsumhverfi. Vaktir og væntingar. - Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
Umræða og upplýsingar um hvernig vöktum og daglegu lífi í athvarfinu verður háttað.
 
Þriðjudagur 20. september, kl. 17:30-19:30
Starfið í athvarfinu – Guðrún Jónsdóttir, Þórunn Þórarinsdóttir og fleiri
Samstarfið og samskipti við íbúa athvarfsins, öryggi, reglur, mörk og virðing. „Skilin á milli hinna verðugu og óverðugu“.  Jafnframt verða settar upp erfiðar aðstæður og farið yfir hvernig megi takast á við þær.
 
Athvarfið er sett á laggirnar af hugsjón fyrst og fremst. Við höfum leigt rúmgott og yndislegt hús. Við eigum fyrir húsaleigu, launum fyrir eina manneskju og lágmarksrekstrarkostnaði. Við treystum á samstöðu íslenskra kvenna og erum sannfærðar um að í sameiningu getum við skapað konum nauðsynleg skilyrði til þess að takast á við afleiðingar ofbeldis og vændis og öðlast betra líf.
Hlökkum til þess að sjá ykkur sem flestar.
Baráttukveðjur
Guðrún Jóns, talskona Stígamóta, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, verkefnastýra athvarfsins og bara allur hópurinn.
 
Ræða Steinunnar í Druslugöngunni

Ágætu druslur!

Ofbeldi er alltaf á ábyrgð ofbeldismannsins.

En í dag búum við í samfélagi þar sem viðhorf okkar allra til nauðgana eru svo skökk og skæld að segja mætti að samfélagið sé gegnsýrt af nauðgunarmenningu.

Nánar...
 
Áskorun frá NEI-hreyfingunni gegn kynbundnu ofbeldi

Á hverju ári leita konur og karlar til neyðarmóttöku nauðgana og Stígamóta eftir útihátíðir. Útihátíðir eiga að snúast um að skemmta sér með vinum sínum og hafa gaman. Allir eiga að geta mætt án þess að eiga í hættu að verða fyrir ofbeldi. Þess vegna vill NEI-hreyfingin ítreka að ábyrgðin er á herðum karla og skilaboðin eru einfaldlega:

EKKI NAUÐGA!

Við biðjum alla um að sameinast um það markmið að útrýma nauðgunum á útihátíðum. Fylgist með því sem gerist í kringum ykkur og ef þið verðið vör við eitthvað grunsamlegt, ýmist skerist í leikinn eða látið lögreglu vita. Komum fram við hvert annað af virðingu og munum að það eru ekki bara ógæfumenn, siðleysingjar og „skrímsli“ sem nauðga. Nauðgarar eru synir, feður, bræður, frændur og vinir. Nauðgar vinur þinn?


 

 

 
Þú getur hlaupið fyrir Stígamót

"Þegar þú skráir þig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka á marathon.is býðst þér í skrefi 4 af 8 að skrá þig sem góðgerðahlaupara fyrir ákveðið góðgerðafélag. Haka þarf í reitinn „Já, ég vil hlaupa til góðs“ og velja góðgerðafélag í fellilistanum. Veljir þú að hlaupa til góðs birtist nafn þitt hér á hlaupastyrkur.is og hver sem er getur heitið á þig með því að senda sms eða greiða með kreditkorti."

 
Hljómsveitin Quarashi gefur Stígamótum 500.000 kr

Oft á ári berast fregnir af því að ein eða fleiri nauðganir hafi átt sér stað á skemmtunum og útihátíðum og jafn oft er þessum ofbeldisverkum lýst í fjölmiðlum á þá leið að um "leiðinda atvik á annars glæsilegri hátíð" hafi átt sér stað. Forsvarsmenn Bestu hátíðarinnar, hljómsveitin Quarashi, sem og aðrar hljómsveitir sem þar koma fram, vilja leggja þunga áherslu á að ofbeldi og sér í lagi kynferðislegt ofbeldi, verði ekki liðið á hátíðinni.
 
Þar sem nú stefnir í að allt að 10 þúsund manns muni safnast saman á Bestu útihátíðinni er það draumur hátíðarhaldara og þeirra hljómsveita sem þar koma fram að allir geti gengið frá stoltir og ánægðir. En umfram allt er það draumur allra að þeir sem hátíðina sækja geti sýnt og sannað að gróf ofbeldisbrot þurfa ekki að vera fastur fylgihlutur útihátíða á borð við þessa. "Ein nauðgun, eitt ofbeldisverk er einu of mikið."
 
Nei hópurinn hefur verið starfandi síðan 2003 og hefur frá upphafi sótt útihátíðir til þess að vekja athygli á alvarleika nauðgana og fyrirbyggja að slík ofbeldisverk séu framin. Forsvarsmenn Bestu útihátíðarinnar eru Nei-hreyfingunni þakklátir fyrir hún hyggst mæta á hátíðina og verð öllum hátíðargestum sýnileg og að boðskapur hreyfingarinnar verði sem fyrirferðarmestur innan um alla tónlistina og gleðina.

Þá hyggst hljómsveitin Quarashi gefa Stígamótum 500 þúsund krónur af þeim tekjum sem hún hefur af því að koma fram.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL