| Gjöf Félagsráðgjafanema til Stígamóta |
|
Mentor og Ólafía, nemendafélög BA og MA nema í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, í samstarfi við Myndform, Græna ljósið og Háskólabíó blésu til sannkallaðrar POWER sýningar á myndinni Precious þar sem allur aðgangseyrir rann óskiptur til Stígamóta. Forsvarskonur félaganna komu til okkar á Stígamót og afhentu peninginn sem nam um kr 175 þúsund |