Stígamót - Grasrótarhreyfing gegn kynferðisofbeldi

 Ég vil gerast styktaraðili Stigamóta

Pólska
Tailenska
Spænska
Enska
Rússneska
 

Stigamot
Gleðilegt ár kæru vinkonur og vinir

 Er að koma af vaktinni í Kristínarhúsi búsetuúrræði Stígamóta. Hrærð og þakklát yfir því að sá draumur skyldi verða að veruleika. Nú er þar ótrúlegt samfélag sjálfboðaliða, starfskvenna og íbúa.  Það hefur sýnt sig að þörfin var til saðar. Húsið svo vel búið að þar er allt til af öllu, þó ekkert hafi verið keypt.  Sannarlega notalegt og fallegt heimili.  Sjálfboðaliðarnir aðdáunarverðar konur sem taka samfélagslega ábyrgð á meðsystrum sínum. 
Takk fyrir ævintýri síðasta árs og megi það næsta verða okkur öllum gott. kv. Guðrún

 
Gleðileg jól

Stígamótafólk, sjálfboðaliðar, vinkonur og velunnarar Stígamóta.  Við þökkum fyrir samstarf og ýmis konar stuðning á árinu, óskum ykkur og þjóðinni allra gleðilegra og friðsælla hátíða.    Stígamót verða lokuð frá 24. des- 2. jan. en Kristínarhús, búsetuúrræði Stígamóta eru opið yfir hátíðarnar.  Síminn þar er 5463000.  Gleðileg jól, Starfskonur Stígamóta

 
Viðurkenningar Stígamóta 2011

Í dag á alþjóðlegum degi gegn kynferðisofbeldi, útdeildu Stígamót  viðurkenningum ársins.  Í ár beindu Stígamót sjónum að þeim hugrökku konum sem á ólíka vegu hafa fylgt réttlætiskennd sinni og rutt brautina fyrir raunverulegt kvenfrelsi.   Sumar hafa dansað á mörkum hins löglega.  Fyrir það hafa þær allar mætt ýmis konar andstöðu. 

Á Stígamótum trúum við því að slíkar konur gegni mjög mikilvægu hlutverki.  Það er kominn tími til að hampa þeim og lyfta þeim upp í ljósið.  Láta alþjóð vita að við stöndum með þeim og séum þakklátar fyrir hugrekki þeirra.  Ekki veitir af á Íslandi ef við viljum með réttu teljast paradís kynjajafnréttis. 
 
Verðlaunahafar ársins voru þær:
 
Berit Aas, professor emerita, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, María Lilja Þrastardóttir,Margrét Pétursdóttir, Sóley Tómasdóttirog aðgerðahópurinn Stóra systir.
 
 
Stígamót óska eftir starfskrafti

Óskað er eftir starfskrafti með áhuga og hvers kyns þekkingu og/eða reynslu á kynbundnu ofbeldi. Um er að ræða fullt starf.

Starfsemi Stígamóta er krefjandi, gefandi og fjölbreytt grasrótarstarf sem byggir á kynjaðri sýn á samfélagið. Daglega starfið felst í viðtalsþjónustu og hópastarfi með fólki sem beitt hefur verið ofbeldi ásamt rekstri á búsetuúrræðinu Kristínarhúsi.

Samábyrgð, frumkvæði og traust eru forsendur farsæls starfs með vandasöm mál. Í starfshópnum ríkir bæði áhugi og starfsgleði sem mikilvægt er að varðveita. Viðkomandi verður að hafa góða samskipta og samstarfshæfileika. Nám í félagsráðgjöf, sálfræði, kynjafræði, eða skyldum fræðum er jafnframt eftirsóknarvert.

Við hvetjum alla með áhuga á starfsemi Stígamóta til að sækja um. Umsóknir sendist til Stígamóta, Hverfisgötu 115, 105 R. fyrir 2. janúar merktar ”Starfsumsókn” Öllum umsóknum verður svarað.
 
Kristínarhús tekur til starfa

 Í september síðastliðnum opnuðu Stígamót athvarf sem nú hefur hlotið nafnið Kristínarhús til minningar um konu sem varð Stígamótakonum mikill innblástur í baráttu sinni gegn því ofbeldi sem vændi er. Kristínarhús er sérstaklega hugsað fyrir konur á leið úr vændi og/eða mansali en getur einnig nýst t.d. fólki utan að landi sem vill sækja viðtöl til Stígamóta eða öðrum sem eru að jafna sig eftir að hafa upplifað ofbeldi. Í Kristínarhúsi er hægt að dvelja til lengri eða skemmri tíma í sér herbergi og stendur ýmis þjónusta til boða. Sími Kristínarhúss er 546-3000 og þar má fá nánari upplýsingar eða hjá verkefnastýru athvarfsins, Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur á netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL