|
Á föstudag og laugardag ætla Skotturnar - samstarfsvettvangur 21 kvennasamtaka að selja barmnælurnar Kynjagleraugun. Ágóðinn mun renna til þess að endurvekja verkefnið Stígamót á staðinn og okkur dreymir um að breyta Stígamótum í sólarhringsathvarf - þar sem lögð verður áhersla á að styðja konur í vændi og sem gætu hafa verið seldar mansali. Skottur ætla að taka að sér kvöld, helgar og næturvinnu í sjálfboðavinnu. Þetta er kvennasamstaða uppá sitt besta. Nælurnar verða seldar í stórmörkuðum, við ÁTVR og í stærri verslunum, á höfuðborgarsvæðinu. Á Ísafirði og á Akureyri munu Sólstafir og Aflið selja samskonar nælur til þess að efla sitt starf.
|